Fyrirtækjaskilmálar
Gildir frá 19.08.2026.
Þessir skilmálar fyrir VEXXA Work (hér eftir „skilmálar“) gilda á milli VEXXA Work (hér eftir „VEXXA Work“) og fyrirtækisins um notkun á VEXXA Work.
Með því að nota þá þjónustu sem VEXXA Work veitir lýsir fyrirtækið því yfir að skilmálarnir hafi verið lesnir yfir af þess hálfu og viðkomandi skilið og samþykkt skilmálana í heild sinni fyrir þess hönd. Sá sem samþykkir skilmálana fyrir hönd fyrirtækisins staðfestir að viðkomandi hefur umboð til þess að samþykkja skilmálana fyrir hönd fyrirtækisins og að fyrirtækið muni virða skilmálana og fara að þeim í einu og öllu. Óheimilt er að nota VEXXA Work án þess að samþykkja skilmálana.
1. Skilgreiningar
Nema sérstaklega sé kveðið á um annað í þessum skilmálum hafa eftirgreind orð í skilmálunum þá merkingu sem hér segir:
1.1 „VEXXA Work“ er kerfi sem býður notendum þess upp á lausn til að skoða og fylgjast með atvinnuauglýsingum, hafa umsjón með eigin ferilskrám og sækja um tiltæk störf sem eru auglýst í VEXXA Work smáforritinu (app) og/eða á heimasíðunni www.vexxawork.com og býður fyrirtækjum lausn þar sem þau geta auglýst störf, tekið á móti atvinnuumsóknum frá umsækjendum, unnið úr umsóknum og átt samskipti við umsækjendur.
1.2 „Umsækjandi“ er einstaklingur sem skráð hefur einstaklingsprófíl í VEXXA Work.
1.3 „Fyrirtæki“ er fyrirtæki, félag, opinber lögaðili eða einstaklingur sem auglýsir starf laust til umsóknar á VEXXA Work og fær umsóknir frá umsækjendum. Hugtakið fyrirtæki í skilmálunum nær einnig til vinnustaðaprófíla sbr. ákvæði 4 í skilmálum þessum, nema annað sé sérstaklega tekið fram. Vinnustaðaprófíll merkir í þessu sambandi aðila sem stundar atvinnurekstur, óháð því hvort slíkur aðili starfar undir eigin kennitölu eða sé viðskiptaleg eining innan tiltekins félagaforms.
1.4 „Gagnagrunnur“ er samansafn hvers kyns efnis sem er raðað á kerfisbundinn eða aðferðafræðilegan hátt og er aðgengilegt með rafrænum hætti eða öðrum hætti, óháð birtingarformi þess og búið hefur verið til af VEXXA Work, sbr. einnig lög nr. 73/1972 („höfundarréttarlögin“), sérstaklega gagnagrunnur um atvinnutilboð og notendasnið.
1.5 „Prófíll“ er snið af ferilskrá einstaklinga í VEXXA Work eða vinnustaðarprófíll í VEXXA Work, sem inniheldur allar upplýsingar um umsækjandann eða fyrirtækið og byggir á upplýsingum sem umsækjandinn eða fyrirtækið hefur veitt í gegnum samfélagsmiðlaaðgang sinn eða hafa verið skráðar sérstaklega af umsækjanda eða fyrirtækinu.
1.6 „Samfélagsmiðlaaðgangur“ merkir hvers kyns aðgang umsækjandans eða fyrirtækisins að samfélagsmiðlum, sem umsækjandinn eða félagið notar til að afla gagna fyrir einstaklingsprófíl þeirra (eins og Facebook, Google eða annað).
1.7 „Notandi“ er einstaklingur sem notar VEXXA Work óháð því hvort hann hefur skráð þar persónuupplýsingar eða ekki.
2. Notkun af fyrirtæki
2.1 Notkun á VEXXA Work af fyrirtæki samanstendur af því að stofna auglýsingar um laust starf til umsóknar, uppfæra upplýsingar um fyrirtækið, hafa umsjón með aðgangi að auglýsingum og aðgangi að umsóknum og vinnslu umsókna og eiga hvers konar samskipti við notendur eða önnur samskipti við VEXXA Work.
2.2 Fyrirtæki skal nota VEXXA Work í þeim tilgangi sem fram kemur í ákvæði 2.1. Þá takmarkast notkun á VEXXA Work af fyrirtæki við almenna og löglega starfsemi og er aðeins fyrir fyrirtækið sjálft. Fyrirtækinu er eingöngu heimilt að nálgast og nota upplýsingar sem tengjast því sjálfu eða umsóknum sem beint er til félagsins.
2.3 Fyrirtækinu er óheimilt að reyna að fá aðgang að og nota upplýsingar sem ætlaðar eru öðrum. Fyrirtækið er ábyrgt fyrir lögmæti, réttleika og áreiðanleika alls efnis sem fyrirtækið skráir í VEXXA Work. Þannig ber fyrirtækið ábyrgð á öllum villum, röngum dagsetningum og/eða öðru sem það skráir við stofnun atvinnuauglýsingar eða síðar.
3. Aðgangur fyrir fyrirtæki
3.1 Í sumum tilvikum, einkum þegar um er að ræða starfsmenn fyrirtækja kunna stjórnendur að búa til aðgang í VEXXA Work kerfið fyrir starfsmenn sína. Fyrirtæki skuldbinda sig þá til að tryggja að starfsmenn, sem þau gera aðgang fyrir í VEXXA Work kerfinu, hafi samþykkt að vera notendur og fyrirtækin skrá þær persónuupplýsingar í kerfið sem af því leiðir. Þá ber viðkomandi stjórnendum fyrirtækja að tryggja nákvæmni og áreiðanleika upplýsinga starfsmanna sinna og að eyða þeim út eftir því sem við á.
3.2 Eftirfarandi gerðir aðgangs eru í boði fyrir fyrirtæki:
3.2.1 Stjórnandi er sá sem hefur aðgang að öllum þjónustuþáttum fyrirtækis í gegnum VEXXA Work.
3.2.2 Fulltrúi getur fengið aðgang að nánar tilgreindum þjónustuþáttum fyrirtækis eftir ákvörðun stjórnanda.
4. Vinnustaðaprófíll
4.1 Fyrirtæki má stofna ótakmarkaðan fjölda vinnustaðaprófíla í skilningi þessa ákvæðis. Vinnustaðaprófílar eru aðilar sem stunda viðskipti í tengslum við fyrirtækið sem er þá eins konar „móðurfélag“, svo sem dótturfélög, systurfélög, útibú eða einingar innan fyrirtækis. Fyrir hvern vinnustaðaprófíl skal veita tilteknar upplýsingar, svo sem heiti og hlaða inn mynd í góðri upplausn af vörumerki/myndmerki þess, auk þess sem veita má frekari upplýsingar. Fyrirtæki sem skráir vinnustaðaprófíl er ábyrgt fyrir lögmæti og réttmæti notkunar þeirra upplýsinga sem veittar eru fyrir hvern slíkan aðila og notkun vörumerkja/myndmerkja fyrirtækjaheitis.
5. Umsóknarferli
5.1 Þegar umsækjandi sækir um starf sem fyrirtækið auglýsir á VEXXA Work getur fyrirtækið tekið á móti ýmsum upplýsingum um umsækjandann, svo sem nafn umsækjanda, mynd, netfang, símanúmer, fæðingardag, kyn, „um“ texta, starfshæfni, starfsreynslu, tungumálakunnáttu, viðhengi og annað sem tilgreint er af umsækjanda, ásamt gögnum sem umsækjandinn hefur tengt við prófíl sinn. Fyrirtækið getur einnig óskað eftir frekari upplýsingum í umsóknarferlinu.
5.2 Umsókn er aðgengileg fyrir fyrirtæki í VEXXA Work í eitt ár frá því að umsækjandi sendir fyrirtæki umsókn nema umsækjandi eyði gögnum sínum áður eða dragi til baka umsókn. Það kann þó að vera að umsóknargögn sem enn eru til staðar verði gerð aðgengileg fyrirtæki eftir þennan tíma í einhverjum tilvikum s.s. vegna lögmætra hagsmuna þeirra, s.s. opinberra aðila vegna skjalavörslu.
5.3 Fyrirtækið og umsækjandinn geta átt samskipti sín á milli í úrvinnsluborðinu. Fyrirtækið og umsækjandinn bera ábyrgð á öllum samskiptum sem kunna að eiga sér stað þeirra á milli, óháð því hvaða aðferð er notuð við samskiptin og hvort þau fara fram í gegnum VEXXA Work eða ekki.
5.4 VEXXA Work ber ekki ábyrgð á umsóknarferlinu eða á árangri fyrirtækis á notkun VEXXA Work. Umsóknarferli er alfarið á ábyrgð fyrirtækisins og öllum fyrirspurnum um umsóknarferli verður beint til fyrirtækisins. VEXXA Work er ekki ábyrgt fyrir útgjöldum eða hvers konar öðrum kostnaði eða tapi sem fyrirtæki kann að verða fyrir ef umsækjandi ákveður að hætta við ráðningu, viðtal eða starfstilboð.
5.5 Fyrirtækið er ábyrgt fyrir innihaldi ráðningarsamninga sem það gerir og fyrir því að tryggja að ráðningar séu gerðar í samræmi við gildandi lög og reglur, s.s. á sviði vinnuréttar, jafnréttislaga eða ákvæða laga um ráðningar barna og ungmenna.
5.6. Ef fyrirtæki ræður umsækjanda til starfa getur það notað VEXXA Work til að senda ráðningartengd skjöl, þar á meðal ráðningarsamninga, til rafrænnar undirritunar.
5.7. Fyrirtæki bera ábyrgð á efni, lögmæti, réttmæti, nákvæmni og notkun allra ráðningartengdra skjala sem send eru í gegnum VEXXA Work, þar á meðal að tryggja að þau séu í samræmi við gildandi lög og reglur sem gilda um ráðningarsambandið.
5.8 VEXXA Work veitir eingöngu tæknilega lausn fyrir rafræna undirritun og er hvorki aðili að ráðningarsamningi né öðrum skjölum sem undirrituð eru í gegnum þjónustuna.
6. Greiðsla fyrir þjónustuna
6.1 Fyrirtæki skal greiða VEXXA Work fyrir þá þjónustu sem VEXXA Work veitir í samræmi við verðskrá sem VEXXA Work setur.
6.2 Öll verð sem tilgreind eru í tilboðum VEXXA Work eða verðskrá eru ávallt birt án virðisaukaskatts, nema annað sé sérstaklega tekið fram við viðkomandi verðskrárlið.
6.3 VEXXA Work kann að breyta verðskrá sinni hvenær sem er eftir þörfum, en skal tilkynna fyrirtækinu um þær breytingar með fyrirvara. Tilkynning um verðskrárbreytingu skal tilkynnt á sama hátt og breytingar á skilmálum þessum.
6.4 VEXXA Work mun skuldfæra kröfu á hendur fyrirtækinu fyrir þá þjónustu sem VEXXA Work hefur veitt því samkvæmt verðskrá, auk virðisaukaskatts, með eftirfarandi hætt: (i) við lok þess tímabils sem auglýsing birtist, (ii) við næstu mánaðarmót eftir að fjárhæðarhámarki auglýsingar hefur verið náð óháð auglýsingatímabili, eða (iii) við næstu mánaðarmót eftir stofnun auglýsingar ef keyptar eru aukabirtingar í tengslum við auglýsingu eða önnur viðbótarþjónusta.
6.5 Allir reikningar eru á gjalddaga 15 dögum frá því VEXXA Work gefur þá út, nema reikningur kveði sérstaklega á um annað.
7. Persónupplýsingar
7.1 VEXXA Work er ábyrgðaraðili vinnslu persónuupplýsinga starfsmanna sem fyrirtækið hefur skráð í VEXXA Work.
7.2 VEXXA Work er ábyrgðaraðili upplýsinga sem umsækjandi hefur skráð hjá VEXXA Work. Ákveði umsækjandi að sækja um starf hjá fyrirtæki verður fyrirtækið sjálfstæður ábyrgðaraðili á vinnslu sinni á þeim persónuupplýsingum umsækjanda sem eru í atvinnuumsókn hans eða hann veitir því í umsóknarferli. VEXXA Work er ekki ábyrgt fyrir meðhöndlun fyrirtækisins á persónuupplýsingum umsækjanda né gagnvart því að uppfylla skyldur fyrirtækisins sem ábyrgðaraðila gagnvart umsækjanda. Það sama á við um meðhöndlun og vinnslu persónuupplýsinga þeirra sem fyrirtækið ræður til starfa.
7.3 Réttindi og skyldur í tengslum við vinnslu persónuupplýsinga koma fram í persónuverndarstefnu VEXXA Work sem finna má í appi félagsins og á vefsíðu www.vexxawork.com
7.4 Fyrirtækinu er óheimilt að afrita upplýsingar um umsækjendur úr VEXXA Work inn í önnur ótengd kerfi og nota þær í öðrum tilgangi en sem hluta af umsóknarferli þeirrar atvinnu sem umsækjandi sótti um.
8. Réttindi og takmarkanir
8.1 VEXXA Work er höfundur gagnagrunnsins og er áskilinn öll réttindi höfundar gagnagrunns í samræmi við ákvæði höfundaréttarlaga, m.a. 42. gr. c og 50. gr.
8.2 Fyrirtæki er skylt að veita VEXXA Work eingöngu réttar, sannar og fullnægjandi upplýsingar og skrá sig eingöngu undir sínu eigin heiti, sbr. ákvæði 4 í skilmálum þessum.
8.3 Fyrirtækið skuldbindur sig til að eiga samskipti við umsækjendur og VEXXA Work í samræmi við tilgang notkunnar, sbr. m.a. ákvæði 2 í skilmálum þessum, og almennt nota VEXXA Work á viðeigandi hátt og í samræmi við góða siði og venjur. Óheimilt er að dreifa hatursáróðri, ólöglegu eða óviðeigandi efni í gegnum VEXXA Work. Leiki vafi á getur VEXXA Work ákveðið hvort efni hafi að geyma hatursáróður, sé ólöglegt eða óviðeigandi og gera viðeigandi ráðstafanir.
8.4 Fyrirtæki er óheimilt að:
8.4.1 draga út eða endurnýta í heild eða að hluta gögn eða upplýsingar sem safnað er úr gagnagrunninum í þeim tilgangi að gera slíkt hluta af öðrum gagnagrunnum („Skjáskröpun“);
8.4.2 endurgera hugbúnaðinn sem VEXXA Work byggir á á nokkurn hátt, þ.m.t. að gera afrit;
8.4.3 dreifa hugbúnaðinum;
8.4.4 birta eða gefa út hugbúnaðinn;
8.4.5 þýða, aðlaga, raða eða breyta hugbúnaðinum á nokkurn hátt;
8.4.6 hnýsast í innviði (reverse engineering), afkóða, taka sundur eða reyna að komast yfir forritunarkóðann á annan hátt;
8.4.7 reyna að brjóta öryggisvarnir forritsins eða ráðast á forritið á annan hátt;
8.4.8 reyna að fá aðgang að hlutum VEXXA Work sem það hefur ekki rétt á að fá aðgang að eða er ekki með leyfi frá VEXXA Work til þess;
8.4.9 koma í kring yfirálagi á þjónustuna með sjálfvirkninotkun;
8.4.10 að öðru leyti nota VEXXA Work í ósamræmi við tilgang þess, eða;
8.4.11 brjóta gegn hugverkaréttindum VEXXA Work
8.5 Fyrirtæki er skylt að tilkynna VEXXA Work um öryggisbresti í VEXXA Work sem það kann að uppgötva við notkun á VEXXA Work.
8.6 Fyrirtæki ber skylda til að birta aðeins eitt starf í atvinnuauglýsingu. Ef auglýsing felur í sér fleiri en eitt starf áskilur VEXXA Work sér rétt til þess að birta auglýsingu fyrir hvert starf sem sett var fram í upprunalegu auglýsingunni og rukka fyrirtæki samkvæmt verðskrá fyrir þann fjölda starfa sem auglýst var eftir.
8.7 Í því skyni að koma í veg fyrir að brotist sé inn í aðgang fyrirtækis eru fyrirtæki skyldugt til þess a.m.k.að:
8.7.1 verja öll tæki gegn misnotkun;
8.7.2 setja upp öruggar innskráningarupplýsingar;
8.7.3 nota ekki aðgangsauðkenni sem notuð eru af þriðja aðila;
8.7.4 vernda aðgangsauðkenni sín; og
8.7.5 koma í veg fyrir misnotkun aðgangsauðkennis.
8.8 Komi upp galli við notkun á VEXXA Work getur fyrirtækið haft samband við VEXXA Work í gegnum heimasíðu VEXXA Work Fyrirtæki er ljóst og samþykkir að það getur tekið VEXXA Work nokkurn tíma að meta gallann og hvaða þjónusta er nauðsynleg.
8.9 Fyrirtækið samþykkir að VEXXA Work geti nýtt sér upplýsingar sem tengjast atvinnuauglýsingum fyrirtækisins til að vinna ýmis konar heildarupplýsingar um vinnumarkaðinn.
9. Trúnaður
9.1 Undir trúnaðarupplýsingar falla hvers kyns gögn, óaðgengileg almenningi, hugbúnaður eða viðskiptaleg gögn eða gögn sem tengjast framleiðslu eða þjónustu viðkomandi samningsaðila, sem eru látin í té eða gerð aðgengileg gagnaðila, beint eða óbeint, með hvaða samskiptamáta eða samskiptum sem er í tengslum við þá þjónustu sem veitt er samkvæmt skilmálum þessum. Undir trúnaðarupplýsingar falla einnig persónuupplýsingar sem unnið er með samkvæmt framangreindu.
9.2 Í skilningi þessa ákvæðis er sá samningsaðili sem lætur í té trúnaðarupplýsingar til gagnaðila talinn „veitandi upplýsinga“ og aðilinn sem tekur á móti trúnaðarupplýsingum telst “móttakandi upplýsinga“.
9.3 Móttakandi upplýsinga samþykkir að gæta trúnaðar um allar trúnaðarupplýsingar sem varða veitanda upplýsinga og nota þær ekki til annars en þess sem nauðsynlegt getur talist vegna samstarfs aðilanna í tengslum við þá þjónustu sem veitt er samkvæmt skilmálum þessum. Þá skuldbindur móttakandi upplýsinga sig til að framkvæma viðeigandi öryggisráðstafanir til að tryggja öryggi trúnaðarupplýsinga og koma í veg fyrir að þær séu birtar eða aðgengilegar þriðja aðila.
9.4 Birting eða hagnýting upplýsinga felur ekki í sér brot gegn trúnaðarskyldu ef um er að ræða (i) birtingu með fyrirfram skriflegu samþykki þess sem upplýsingar eru birtar um; (ii) birtingu vegna skyldu sem mælt er fyrir um í lögum eða af opinberu stjórnvaldi; (iii) ef upplýsingarnar eru orðnar opinberar með lögmætum hætti; (iv) ef upplýsingar eru látnar í té ráðgjafa eða öðrum samstarfsaðila móttakanda upplýsinga að því gefnu að slíkur samstarfsaðili sé bundinn trúnaðarskyldu samkvæmt samningi eða lögum sem er að minnsta kosti jafn rík og kveðið er á um í þessu ákvæði; eða (v) ef birting telst nauðsynleg vegna samstarfs milli aðilanna.
9.5 Þrátt fyrir ákvæði skilmála þessara er móttakanda upplýsinga eingöngu heimilt að birta eða hagnýta trúnaðarupplýsingar veitanda upplýsinga að því marki sem nauðsynlegt getur talist. Í tilviki undanþágu (ii) í ákvæði 9.4 skal móttakandi upplýsinga láta veitanda upplýsinga vita án tafar um slíka birtingu eða hagnýtingu upplýsinga, nema slíkt sé í andstöðu við lagafyrirmæli.
10. Takmörkun ábyrgðar
10.1 Upplýsingar í VEXXA Work um umsækjanda koma frá honum sjálfum og ber VEXXA Work enga ábyrgð á áreiðanleika þeirra upplýsinga, að þær séu fullnægjandi eða í samræmi við lög. Þá ber VEXXA Work enga ábyrgð á lögmæti eða áreiðanleika annarra upplýsinga sem umsækjandi kann að veita né því að þær teljist fullnægjandi, eða samskiptum milli fyrirtækis og umsækjanda.
10.2 Ef í prófíl notenda, fylgigögnum eða pósthólfi eru tenglar á aðar vefsíður eða annars konar samskiptamiðla, þá ber VEXXA Work enga ábyrgð á efni eða starfsemi slíkra tengla eða samskiptamiðla.
10.3 VEXXA Work ber ekki ábyrgð á því ef tilkynningar frá VEXXA Work reynast gallaðar, þeim seinkar eða ef fyrirtækið fær þær ekki.
10.4 VEXXA Work ber ekki ábyrgð á efni starfsauglýsinga frá fyrirtækjum eða lögmæti þeirra. VEXXA Work er ekki ábyrgt fyrir mistökum, röngum dagsetningum eða áreiðanleika upplýsinga sem fyrirtæki skráir við stofnun auglýsinga eða síðar.
10.5 VEXXA Work ber ekki ábyrgð á efni ráðningarsamninga eða því hvort ráðning starfsmanns samræmist lögum, sbr. m.a. ákvæði 5.5.
10.6 VEXXA Work er ekki ábyrgt fyrir óþægindum eða skemmdum sem kunna að verða vegna bilana eða galla í VEXXA Work, svo sem vélrænni bilun, tæknilegum mistökum, vegna hugbúnaðaruppfærslu, bilun í hugbúnaði, kerfisuppfærslu, galla í stýrikerfum, netkerfum eða fjarskiptakerfum eða vegna rofs á þjónustu VEXXA Work vegna rafmagnsbilunar eða truflana á fjarskiptaþjónustu.
10.7 Fyrirtækið veitir VEXXA Work upplýsingar um fyrirtækið sjálft og um störf í boði á eigin ábyrgð. VEXXA Work ber ekki ábyrgð á tjóni sem kann að eiga sér stað vegna þriðja aðila sem fær upplýsingar um fyrirtækið í VEXXA Work með ólögmætum hætti, svo sem með aðgangsbrotum (e. hacking). Enn fremur er VEXXA Work ekki ábyrgt fyrir því hvernig umsækjandi meðhöndlar upplýsingar eða gögn sem fyrirtækið veitir umsækjanda í umsóknarferlinu.
10.8 VEXXA Work er ekki ábyrgt vegna óviðráðanlegra atvika (force majeure) sem geta leitt til þess að þjónusta VEXXA Work verði óaðgengileg, svo sem vegna ákvarðana stjórnvalda, náttúruhamfara, verkfalla (þ.m.t. fyrirhuguð verkföll) eða verkbanna, uppreisna, uppþota, skemmdarverka, hryðjuverka eða stríða eða vegna annarra svipaðra atburða sem ekki er hægt að koma í veg fyrir eða ráða við með venjulegum hætti af hálfu VEXXA Work
10.9 Ef VEXXA Work bilar eða liggur niðri, kann þjónustan að verða tímabundið óaðgengileg fyrir fyrirtækið án réttar þess til bóta.
10.10 Fyrirtækinu er kunnugt um og samþykkir þær ábyrgðartakmarkanir sem tilgreindar eru í þessari grein.
11. Hugverkaréttur
11.1 Allt efni á vefsíðu VEXXA Work og VEXXA Work, svo sem hönnun, texti, grafík, myndir, ljósmyndir, upplýsingar, vörumerki VEXXA Work, tákn, tölvuforrit, frumkóði, gagnasöfn og önnur hugverk tilheyra eingöngu VEXXA Work eða samstarfsaðilum og dótturfélögum og njóta verndar laga um höfundarrétt og hugverkaréttindi. Óleyfileg notkun, þ.m.t. afritun, fjölföldun eða dreifing á þessu efni, hvort sem er að hluta eða í heild, kann að brjóta gegn lögum og er óheimil án leyfis VEXXA Work Með því að samþykkja þessa skilmála og nota VEXXA Work veitir VEXXA Work notanda eða fyrirtæki ekki leyfi til að nota hugverkaréttindin á nokkurn annan hátt en sem nauðsynlegt getur talist til að sækja um störf eða bjóða störf í gegnum VEXXA Work og til að hafa umsjón með starfsumsóknum.
12. Brot á skilmálum
12.1 Verði fyrirtækið uppvíst að alvarlegum brotum á skilmálum þessum eða misnotar VEXXA Work á einhvern hátt áskilur VEXXA Work sér rétt til þess að loka aðgangi fyrirtækisins að VEXXA Work án fyrirvara tímabundið eða ótímabundið, eyða öllum eða sumum atvinnuauglýsingum, eyða vinnustaðaprófíl eða grípa til annarra viðeigandi úrræða. Sama gildir ef fyrirtækið hagar sér með ólögmætum eða óviðeigandi hætti.
12.2 Það telst ávallt alvarlegt brot á skilmálum þessum ef fyrirtæki:
12.2.1 er í vanskilum lengur en 15 daga með greiðslur sem VEXXA Work hefur krafið um með réttmætum hætti samkvæmt skilmálum þessum.
12.2.2 sendir eða á annan hátt deilir upplýsingum sem brjóta gegn lögum eða skilmálunum eða gætu skaðað velvild og orðspor VEXXA Work;
12.2.3 brýtur gegn skyldum sínum sem eru tilgreindar eru í ákvæðum 7, 8 og 9 skilmála þessara.
12.2.4 býr til upplýsingasíðu í VEXXA Work sem byggir á óleyfilegri skráningu t.d. aðila sem ekki er til eða notar upplýsingar frá þriðja aðila án samþykkis þess aðila;
12.2.5 skráningu upplýsinga frá þriðja aðila án samþykkis þess aðila;
12.2.6 dreifir hatursfullu, ólöglegu eða óviðeigandi efni í gegnum VEXXA Work.
12.3 VEXXA Work áskilur sér rétt til að fjarlægja alla hatursorðræðu, ólöglegt og óviðeigandi efni úr VEXXA Work án fyrirvara.
12.4 Leiki grunur á að fyrirtæki hafi viðhaft ólögmæta háttsemi áskilur VEXXA Work sér rétt til að upplýsa viðeigandi yfirvöld um slíkt og telst slíkt ekki brot á trúnaðarskyldu samkvæmt ákvæði 9 í skilmálum þessum. VEXXA Work er ekki skylt að upplýsa fyrirtækið um slíka tilkynningu til yfirvalda.
13. Breytingar á skilmálum
13.1 VEXXA Work áskilur sér rétt til að gera breytingar á skilmálunum, eftir því sem þörf er á. VEXXA Work mun tilkynna fyrirtækinu um skilmálabreytingar í gegnum tilgreint netfang þess eða með tilkynningu sem birtist við næstu innskráningu og með því að gera nýja skilmála aðgengilega á vefsíðu VEXXA Work Hafni fyrirtækið ekki breytingu á skilmálum innan 15 daga frá því að það fékk um það tilkynningu með tölvupósti eða í gegnum VEXXA Work, eftir því hvort barst því fyrst, samþykkir fyrirtækið hina breyttu skilmála. Hafni fyrirtækið hinum breyttu skilmálum innan framangreinds tímabils, telst sú höfnum jafngilda uppsögn á þjónustu VEXXA Work.
14. Uppsögn
14.1 Fyrirtækið hefur rétt til að segja upp þjónustu VEXXA Work með skriflegri tilkynningu með 15 daga fyrirvara, sem hefst á þeim degi sem slík tilkynning berst VEXXA Work á netfangið info@vexxawork.com
14.2 VEXXA Work hefur rétt til að segja upp þjónustu fyrirtækisins á VEXXA Work með 15 daga fyrirvara sem hefst á þeim degi er fyrirtæki berst tilkynning um uppsögn.
14.3 Við uppsögn á þjónustu VEXXA Work, af hvaða ástæðu sem er, ber fyrirtækinu að greiða VEXXA Work fyrir alla veitta þjónustu fram að lokum uppsagnarfrests.
14.4 Við uppsögn á þjónustu VEXXA Work verður við lok uppsagnarfrests lokað fyrir aðgang fyrirtækisins að VEXXA Work og allar auglýsingar þess hætta að birtast umsækjendum.
14.5 Ákvæði sem ætlað er að gilda lengur, jafnvel eftir að þjónustu VEXXA Work og notkun skv. skilmálum þessum hefur verið sagt upp, halda gildi sínu, svo sem ákvæði 1, 2.3, 5.3, 5.4, 5.5, 8.1, 8.3, 8.4, 9, 10, 11, 14.5, 16, 17 og 18 þrátt fyrir uppsögnina. Trúnaðarskylda í tengslum við trúnaðarupplýsingar sem veittar hafa verið og mótteknar fyrir uppsögnina helst (i) um trúnaðarupplýsingar sem teljast viðskiptaleyndarmál þar til trúnaðarupplýsingarnar teljast ekki lengur vera viðskiptaleyndarmál samkvæmt viðeigandi lagaákvæðum um slíkt; (ii) um aðrar trúnaðarupplýsingar í 3 ár frá lokum þjónustu VEXXA Work og samningsins. Trúnaðarskylda varðandi persónuupplýsingar helst þó áfram.
15. Eigendaskipti á VEXXA Work
15.1 Með notkun VEXXA Work samþykkir fyrirtæki að heimilt sé að flytja eignarhald á VEXXA Work eða VEXXA Work að hluta eða öllu leyti til þriðja aðila ásamt öllum þeim upplýsingum sem VEXXA Work hefur að geyma, án sérstaks samþykkis fyrirtækis. Sama gildir um hvers konar önnur lagaleg eigendaskipti á VEXXA Work eða VEXXA Work Yfirfærsla eignarhalds eða önnur lagaleg eigendaskipti að því er varðar VEXXA Work eða VEXXA Work, að hluta eða öllu leyti, hefur engin áhrif á gildi skilmálanna eða réttindi og skyldur aðila skv. skilmálunum. Tilvísun til VEXXA Work eða VEXXA Work í skilmálunum er tilvísun til kerfisins eða til félagsins með því eignarhaldi sem er til staðar á hverjum tíma.
16. Gildandi lög og lögsaga
16.1 Um réttindi og skyldur samningsaðila sem tengjast notkun á VEXXA Work eða leiða af skilmálum þessum fer samkvæmt íslenskum lögum.
16.2 Rísi ágreiningsmál milli aðila vegna notkunnar á VEXXA Work eða vegna skilmála þessara skal slíku máli ráðið til lykta fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur nema annað sé tekið fram.
17. Tungumál
17.1 Skilmálar VEXXA Work eru alla jafna gefnir út bæði á íslensku og ensku. VEXXA Work getur sjálfur ákveðið hvort íslenska eða enska er notuð er VEXXA Work fullnægir skyldum sínum samkvæmt skilmálunum þessum. Ef misræmi er á milli skilmála skal íslenski textinn ráða.
18. Samskipti
18.1 Öll samskipti milli samningsaðila skulu vera á íslensku eða ensku, einkum rafrænt í gegnum VEXXA Work eða netfangið info@vexxawork.com
18.2 Kveði einhver ákvæði skilmálanna eða ákvæði laga sérstaklega á um skrifleg samskipti, er skriflegt form á pappír ekki nauðsynlegt ef VEXXA Work hefur gert ráðstafanir gagnvart notanda um skrifleg samskipti á netfang hans með einföldum rafrænum undirskriftum eða í gegnum VEXXA Work.
19. Gildistími
19.1 Skilmálarnir eru gefnir út af VEXXA Work og gilda frá 19.08.2026.
Viðauki við Fyrirtækjaskilmála VEXXA Work
Viðauki þessi er viðauki við Fyrirtækjaskilmála VEXXA Work, og jafnframt hluti þeirra skilmála, og gildir um notkun fyrirtækja á Hæfnileit VEXXA Work (hér einnig vísað til sem „þjónustan“) sem er aðgengileg á vefsíðu og í appi VEXXA Work Öll ákvæði skilmálanna gilda einnig um Hæfnileit nema annað sé sérstaklega tekið fram eða leiði af eðli máls. Með því að nota Hæfnileit VEXXA Work lýsir fyrirtæki því yfir að skilmálarnir hafi verið lesnir yfir af þessu hálfu og viðkomandi skilið og samþykkt skilmálanna fyrir þess hönd, þ.m.t.þennan viðauka. Óheimilt er að nota Hæfnileit án þess að samþykkja skilmálana ásamt viðauka þessum.
1. Skilgreiningar
1.1. “Hæfnibjóðendur” eru umsækjendur í VEXXA Work sem hafa skráð sig í Hæfnileit.
1.2. “Hæfnileitendur” eru fyrirtæki í VEXXA Work sem nota Hæfnileit til að finna viðeigandi umsækjendur.
1.3. “Hæfnileit” er sérstök virkni í VEXXA Work sem parar saman prófíla hæfnibjóðenda við starfslýsingar hæfnileitenda með hjálp síuskilyrða og gervigreindar.
1.4. “Gervigreind” er gervigreindarkerfi þriðja aðila sem VEXXA Work nýtir og hefur verið þjálfað til þess að lesa og para saman prófíla hæfnibjóðenda og starfslýsingar hæfnileitenda.
2. Lýsing á þjónustunni
2.1. Þjónustan tengir hæfnibjóðendur við hæfnileitendur með því að para prófíla saman við starfslýsingar. Það er gert með því að nota síur og gervigreind til að vinna úr uppgefnum upplýsingum frá þessum aðilum.
2.2. Hæfnileit er ekki ætluð börnum eða einstaklingum yngri en 18 ára. Með skráningu í Hæfnileit staðfestir notandi að hann sé 18 ára eða eldri.
3. Skráning í Hæfnileit
3.1. Þátttaka í Hæfnileit er valkvæð bæði fyrir hæfnibjóðendur og hæfnileitendur. Hæfnibjóðendur sem kjósa að taka þátt í Hæfnileit VEXXA Work þurfa að samþykkja slíkt sérstaklega og uppfylla eftirfarandi skilyrði í grein 3.2. Í viðauka þessum.
3.2. Til að skrá sig í Hæfnileit þurfa hæfnibjóðendur að:
3.2.1. Ljúka við að fylla út prófíl sinn í VEXXA Work að fullu (100%).
3.2.2. Gefa viðbótarupplýsingar, sem bætast við prófílinn og eru eingöngu notaðar í Hæfnileit, s.s. hæfni, starfskjör, starfsaðstæður og ferilskrá (hafi hún ekki áður verið tengd við prófíl).
3.2.3. Auðkenna sig með rafrænum skilríkjum og þar með gefa upplýsingar um fullt nafn, kennitölu og símanúmer.
3.3. Hæfnibjóðendur geta hvenær sem er valið að gera hlé á þátttöku sinni eða segja sig alfarið úr Hæfnileitinni, með því að haka sig úr Hæfnileit á vefsíðu eða í appi VEXXA Work.
3.4. Til að skrá sig í Hæfnileit þurfa hæfnileitendur að:
3.4.1. Fylla út starfslýsingu í flipanum “Hæfnileit” á vefsíðu og í appi VEXXA Work sem felur meðal annars í sér upplýsingar um starf, hæfnikröfur, starfskjör, starfsaðstæður.
3.4.2. Hæfnileitendur geta valið að láta nafn fyrirtækis ekki koma fram fyrr en hæfnibjóðendur fá boð í viðtal, sbr. grein 6.1. í viðauka þessum.
3.4.3. Ef hæfnileitendur vilja einnig auglýsa sama starf á vefsíðu og appi VEXXA Work þarf að búa til sérstaka auglýsingu eftir því sem almennt gildir. Skráning í Hæfnileitina er sérstök þjónusta og því eru þær skráningar meðhöndlaðar og paraðar sérstaklega óháð hefðbundum auglýsingum.
4. Notkun gagna og persónuvernd
4.1. Þjónustan notar eingöngu gögn og skjöl sem hæfnibjóðandi hefur sjálfur slegið inn í prófíl sinn. Þjónustan notar ekki persónugreinanlegar upplýsingar eins og nafn, aldur, kyn, þjóðerni eða trúarbrögð við pörun. Sjá nánar í Persónuverndarstefnu VEXXA Work.
4.2. Fyrsta síun prófíla hæfnibjóðenda byggist á uppgefnum upplýsingum þeirra, s.s. um hæfni, starfskjör og starfsaðstæður.
5. Gervigreindarpörun
5.1. Prófílar sem standast fyrstu síun eru sendir áfram í gervigreindarkerfi þriðja aðila. Gervigreindin metur upplýsingar úr prófílum, s. s. menntun og starfsreynslu og velur hóp hæfnibjóðenda sem fær upplýsingar um að verið sé að leita að starfsmanni í tiltekið starf. Þeir hæfnibjóðendur hafa tilgreindan tíma til að lýsa yfir áhuga á að sækja um starfið.
5.2. Gervigreindin velur með sama hætti úr hópi þeirra sem lýsa yfir áhuga og fá hæfnileitendur í kjölfarið aðgang að prófílum þeirra sem þá eru valdir.
5.3. Ef gervigreindin parar enga hæfnibjóðendur við starfslýsingu fá hæfnileitendur tækifæri til þess að breyta starfslýsingu.
6. Boð og miðlun upplýsinga
6.1. Þegar hæfnileitendur hafa fengið aðgang að prófílum hæfnibjóðenda geta þeir valið að bjóða hæfnibjóðendum í viðtal.
6.2. Hæfnileitendur eru ekki skuldbundnir til að senda boð til neins af þeim hæfnibjóðendum sem þeim voru sýndir.
6.3. Ef hæfnileitendur velja að bjóða einum eða fleirum í viðtal, sbr. grein 6.1. í viðauka þessum, fá hæfnibjóðendur upplýsingar um nafn fyrirtækisins ef það hefur ekki legið fyrir, sbr. grein 3.4. í viðauka þessum. Við tekur hefðbundið umsóknarferli með sama hætti og þegar umsækjandi hefur sent umsókn til fyrirtækis. Hæfnileitendur eru sjálfstæðir ábyrgðaraðilar vinnslu sinnar á persónuupplýsingum hæfnibjóðenda sem þeir ákveða að vinna með.
6.4. Ef hæfnibjóðendur hafna boðinu eða lýsa ekki yfir áhuga innan tilgreinds tíma fá hæfnileitendur ekki aðgang að prófílum þeirra.
7. Geymsla gagna og gagnsæi
7.1. Niðurstöður Hæfnileitar eru geymdar í þrjá mánuði og hægt er að fara yfir þær til að veita skýringar ef hæfnibjóðendur óska eftir því eða vilja setja fram sjónarmið eða athugasemdir. Niðurstöður Hæfnileitar verða ekki gerðar aðgengilegar Hæfnileitendum með öðrum hætti en skv. grein 5.2. í viðauka þessum og þá í ofangreinda þrjá mánuði, en af því leiðir að geymslutími skv. grein 5.2 skilmálanna á ekki við.
7.2. Hæfnibjóðendur getaóskað skýringa á niðurstöðum Hæfnileitar og rökum sem búa að baki í ofangreinda þrjá mánuði með því að hafa samband við þjónustuver í tölvupósti, info@vexxawork.com. Hafi notandi hins vegar eytt gögnum sínum úr hæfnileit, sbr. ákvæði 3.3. í viðauka þessum, er ekki hægt að veita honum þessar upplýsingar.
8. Ábyrgð hæfnibjóðenda og hæfnileitenda
8.1. Hæfnibjóðendum og hæfnileitendum ber að sjá til þess að upplýsingar sem þeir veita séu réttar og uppfærðar. Misnotkun eða rangar upplýsingar geta leitt til tímabundinnar eða varanlegrar brottvísunar úr VEXXA Work, sbr. ákvæði skilmálanna um brot á þeim.
9. Breytingar á skilmálum
9.1. Viðauka þessum kann að verða breytt sérstaklega og þá í samræmi við ákvæði skilmálanna um breytingar.
Almennir skilmálar · Persónuverndarstefna · Vefkökustefna · Eyðing reikninga
