Notendaskilmálar VEXXA Work

Gildir frá 19.08.2026.

English version

Þessir skilmálar fyrir VEXXA Work (hér eftir "skilmálar") gilda á milli VEXXA Work, Reykjavík, Íslandi (hér eftir "VEXXA Work" eða VEXXA Work) og notenda um notkun á VEXXA Work. Með því að nota þá þjónustu sem VEXXA Work veitir lýsir notandinn því yfir að hann hafi lesið, skilið og samþykkt skilmálana í heild sinni. Óheimilt er að nota VEXXA Work án þess að samþykkja skilmálana.

1. Skilgreiningar

1.1 „VEXXA Work“ er kerfi sem býður notendum þess upp á lausn til að skoða og fylgjast með atvinnuauglýsingum, hafa umsjón með eigin ferilskrám og sækja um tiltæk störf sem eru auglýst í VEXXA Work smáforritinu (app) og/eða á heimasíðunni www.vexxawork.com og býður fyrirtækjum lausn þar sem þau geta auglýst störf, tekið á móti atvinnuumsóknum frá umsækjendum, unnið úr umsóknum og átt samskipti við umsækjendur. Þá býður VEXXA Work upp á sérstaka virkni sem nefnist Hæfnileit, sem parar saman prófíla hæfnibjóðenda (umsækjenda) við starfslýsingar hæfnileitenda (fyrirtækja) með hjálp síuskilyrða og gervigreindar, sbr. viðauki 1 við skilmála þessa.”

1.2 „Umsækjandi“ er einstaklingur sem skráð hefur einstaklingsprófíl í VEXXA Work.

1.3 „Fyrirtæki“ er fyrirtæki, félag, opinber lögaðili eða einstaklingur sem auglýsir starf laust til umsóknar á VEXXA Work og fær umsóknir frá umsækjendum. Hugtakið fyrirtæki í skilmálunum nær einnig til vinnustaðaprófíla fyrirtækis. Vinnustaðaprófíll merkir í þessu sambandi aðila sem stundar atvinnurekstur, óháð því hvort slíkur aðili starfar undir eigin kennitölu eða sé viðskiptaleg eining innan tiltekins félagaforms.

1.4 „Gagnagrunnur“ er samansafn hvers kyns efnis sem er raðað á kerfisbundinn eða aðferðafræðilegan hátt og er aðgengilegt með rafrænum hætti eða öðrum hætti, óháð birtingarformi þess og búið hefur verið til af VEXXA Work, sbr. einnig lög nr. 73/1972 („höfundarréttarlögin“), sérstaklega gagnagrunnur um atvinnutilboð og notendasnið.

1.5 „Prófíll“ er snið af ferilskrá einstaklinga í VEXXA Work eða vinnustaðarprófíll í VEXXA Work, sem inniheldur allar upplýsingar um umsækjandann eða fyrirtækið og byggir á upplýsingum sem umsækjandinn eða fyrirtækið hefur veitt í gegnum samfélagsmiðlaaðgang sinn eða hafa verið skráðar sérstaklega af umsækjanda eða fyrirtækinu.

1.6 „Samfélagsmiðlaaðgangur“ merkir hvers kyns aðgang umsækjandans eða fyrirtækisins að samfélagsmiðlum, sem umsækjandinn eða félagið notar til að afla gagna fyrir prófíl þeirra (eins og Facebook, Google eða annað).

1.7 „Notandi“ er einstaklingur sem notar VEXXA Work óháð því hvort hann hefur skráð þar persónuupplýsingar eða ekki.

2. Notkun af notanda

2.1 Notkun á VEXXA Work af notanda samanstendur af:

2.1.1 Sem umsækjandi; af því að skoða atvinnuauglýsingar um laust starf frá fyrirtækjum, fylgjast með lausum störfum samkvæmt eigin vali umsækjanda á atvinnuflokkum, starfshlutfalli, staðsetningu atvinnu o.þ.h., uppfærslu eigin upplýsinga um starfsferil, hæfni og aðra kunnáttu sem skilgreind er á einstaklingsprófíl hans, umsóknir um störf eða hvers konar önnur samskipti við fyrirtæki eða önnur samskipti við VEXXA Work.

2.1.2 Sem starfsmaður fyrirtækis sem auglýsir störf á VEXXA Work; af því að skrá sig inn á fyrirtækjaaðgang, stofna aðganga fyrir aðra starfsmenn, setja inn auglýsingar, sjá um úrvinnslu umsókna og eiga samskipti við umsækjendur, allt eftir aðgangsheimildum viðkomandi.

2.2 Notandi skal nota VEXXA Work í þeim tilgangi sem fram kemur í ákvæði 2.1. Þá takmarkast notkun á VEXXA Work af notanda við almenna og löglega háttsemi og er aðeins fyrir notandann sjálfan. Notanda er eingöngu heimilt að nálgast og nota upplýsingar sem tengjast honum sjálfum og störfum sem auglýst eru af fyrirtækjum. Notanda er óheimilt að reyna að fá aðgang að og nota upplýsingar sem ætlaðar eru öðrum.

3. Aðgangur fyrir notendur

3.1 Eftirfarandi gerðir aðgangs eru í boði fyrir notanda:

3.1.1 Innskráning með símanúmeri. Símanúmer umsækjanda og SMS staðfestingarkóði eru notuð þegar umsækjandi stofnar einstaklingsprófíl sinn. Með því að skrá sig inn samþykkir notandinn skilmála þessa.

3.1.2 Innskráning með netfangi. Netfang umsækjanda og tölvupóstur með staðfestingarkóða eru notuð þegar umsækjandi stofnar einstaklingsprófíl sinn. Netfang starfsmanns fyrirtækis er notað til að stofna aðgang hans að fyrirtækjaaðgangi í VEXXA Work. Með því að skrá sig inn samþykkir umsækjandi/starfsmaður skilmála þessa.

3.1.3 Innskráning með samfélagsmiðlum. Umsækjandi er innskráður gegnum samfélagsmiðlaaðgang. Með því að skrá sig inn samþykkir umsækjandinn skilmála þessa og samþykkir þar með að veita VEXXA Work og VEXXA Work aðgang að upplýsingum sem hann kann að hafa veitt á samfélagsmiðlaaðgangi sínum. Upplýsingarnar eru aðeins sóttar þegar umsækjandinn skráir sig í fyrsta sinn. Ef umsækjandi uppfærir upplýsingar sínar á samfélagsmiðlaaðgangi uppfærast upplýsingarnar ekki sjálfkrafa í VEXXA Work.

3.1.4 Aðgangur án innskráningar. Með þessu er aðeins hægt að skoða auglýsingar sem eru til staðar í VEXXA Work. Með því að nota VEXXA Work á þennan hátt samþykkir notandinn skilmála þessa.

4. Umsóknarferli

4.1 Hafi umsækjandi áhuga á að sækja um starf, sem auglýst er á VEXXA Work, getur hann sent umsókn til fyrirtækis með þeim upplýsingum sem þegar eru til staðar á einstaklingsprófíl sínum ásamt þeim viðbótarupplýsingum sem fyrirtækið hefur óskað eftir og frekari upplýsingum sem umsækjandi vill koma á framfæri. Samskipti þessi geta átt sér stað í VEXXA Work.

4.2 Fyrirtækið og umsækjandinn bera ábyrgð á öllum samskiptum sem kunna að eiga sér stað þeirra á milli, hvort sem þau fara fram í gegnum VEXXA Work eða ekki.

4.3 Telji starfsmenn fyrirtækis umsækjanda einnig hæfan í annað starf innan fyrirtækisins, s.s. í annarri deild eða einingu, er umsækjandi samþykkur því að þeim sé heimilt að senda umsóknina áfram til starfsmanna viðkomandi deildar eða einingar innan fyrirtækisins. Í framhaldinu hefst hefðbundin úrvinnsla í þeirri deild eða einingu og getur umsækjandi verið boðaður í viðtal eða frekari gagna óskað.

4.4 Umsækjandi getur dregið umsókn sína til baka hvenær sem er með því að velja viðeigandi valkost í VEXXA Work.

4.5 Umsókn er aðgengileg fyrir fyrirtæki í VEXXA Work í eitt ár frá því að umsækjandi sendir fyrirtæki umsókn nema umsækjandi eyði gögnum sínum áður eða dragi til baka umsókn. Það kann þó að vera að umsóknargögn sem enn eru til staðar verði gerð aðgengileg fyrirtæki eftir þennan tíma í einhverjum tilvikum s.s. vegna lögmætra hagsmuna þeirra, s.s. opinberra aðila vegna skjalavörslu.

4.6. Ef umsækjandi er ráðinn til starfa hjá fyrirtæki getur fyrirtækið notað VEXXA Work til að senda umsækjandanum skjöl í tengslum við ráðninguna, þar á meðal ráðningarsamning og önnur skjöl sem tengjast móttöku nýs starfsmanns, til rafrænnar undirritunar. Umsækjandi ber ábyrgð á að kynna sér efni slíkra skjala áður en þau eru undirrituð. VEXXA Work veitir einungis tæknilega lausn fyrir rafræna undirritun og ber hvorki ábyrgð á efni, gildi né réttaráhrifum ráðningartengdra skjala.

5. Persónuupplýsingar

5.1 Innskráningarupplýsingar notandans eru annaðhvort netfang, símanúmer hans ásamt SMS staðfestingarkóða sem er sendur til notandans frá VEXXA Work eða aðgangsauðkenni umsækjanda fyrir samfélagsmiðlaaðgang við innskráningu. Netfang eða símanúmer gætu verið geymdar af VEXXA Work en aðrar innskráningarupplýsingar eru ekki geymdar í VEXXA Work.

5.2 Notandinn sjálfur er ábyrgur fyrir því að geyma innskráningarupplýsingar sínar og halda þeim leyndum. Verði notandi var við óeðlilega notkun eða að óviðkomandi hafi komist yfir innskráningarupplýsingar hans er það á ábyrgð notandans að gera viðeigandi ráðstafanir, svo sem að hafa samband við VEXXA Work

5.3 Upplýsingar um notandann, sem hann hefur skráð í VEXXA Work eða veitt aðgang að með aðgangi að samfélagsmiðlaaðgangi, eru geymdar með rafrænum hætti í gagnagrunni VEXXA Work.

5.4 VEXXA Work er ábyrgðaraðili í tengslum við vinnslu persónuupplýsinga notenda, þ.m.t. þeirra sem umsækjandi gefur upp á einstaklingsprófíl.

5.5 Réttindi og skyldur í tengslum við vinnslu persónuupplýsinga koma fram í persónuverndarstefnu VEXXA Work sem finna má í appi og á vefsíðu félagsins www.vexxawork.com.

5.6 Ef umsækjandi ákveður að sækja um starf hjá fyrirtæki, þá verður fyrirtækið sjálfstæður ábyrgðaraðili vegna vinnslu þess á persónuupplýsingum umsækjanda sem það fær aðgang að t.d. einstaklingsprófíl og öðrum umsóknargögnum. VEXXA Work er ekki ábyrgt fyrir vinnslu fyrirtækis á persónuupplýsingum umsækjanda.

5.7 Ef fyrirtæki nota kerfi í umsjón þriðja aðila, s.s. mannauðskerfi, er VEXXA Work heimilt að færa afrit af persónuupplýsingum ráðinna umsækjenda beint í slík kerfi, óski fyrirtæki eftir því. Við tilfærsluna verður fyrirtækið ábyrgðaraðili að vinnslu persónuupplýsinganna.

6. Réttindi og takmarkanir

6.1 VEXXA Work er höfundur gagnagrunnsins og er áskilinn öll réttindi höfundar gagnagrunns í samræmi við ákvæði höfundaréttarlaga m.a. 42. gr. c og 50. gr.

6.2 Notanda er skylt að veita VEXXA Work eingöngu réttar, sannar og fullnægjandi upplýsingar og skrá sig undir sínu eigin nafni.

6.3 Notandi skuldbindur sig til að eiga samskipti við fyrirtæki og VEXXA Work í samræmi við tilgang notkunar, sbr. m.a. ákvæði 2 í skilmálum þessum, og almennt nota VEXXA Work á viðeigandi hátt og í samræmi við góða siði og venjur. Óheimilt er að dreifa hatursáróðri, ólöglegu eða óviðeigandi efni í gegnum VEXXA Work. Leiki vafi á getur VEXXA Work ákveðið hvort efni hafi að geyma hatursáróður, sé ólöglegt eða óviðeigandi og gera viðeigandi ráðstafanir.

6.4 Notanda er óheimilt að:

6.4.1 draga út eða endurnýta í heild eða að hluta gögn eða upplýsingar sem safnað er úr gagnagrunninum í þeim tilgangi að gera slíkt hluta af öðrum gagnagrunnum ("Skjáskröpun");

6.4.2 endurgera hugbúnaðinn sem VEXXA Work byggir á á nokkurn hátt, þ.m.t. að gera afrit;

6.4.3 dreifa hugbúnaðinum;

6.4.4 birta eða gefa út hugbúnaðinn;

6.4.5 þýða, aðlaga, raða eða breyta hugbúnaðinum á nokkurn hátt;

6.4.6 hnýsast í innviði (reverse engineering), afkóða, taka sundur eða reyna að komast yfir forritunarkóðann á annan hátt;

6.4.7 reyna að brjóta öryggisvarnir forritsins eða ráðast á forritið á annan hátt;

6.4.8 reyna að fá aðgang að hlutum VEXXA Work sem notandinn hefur ekki rétt á að fá aðgang að eða er ekki með leyfi frá VEXXA Work til þess;

6.4.9 koma í kring yfirálagi á þjónustuna með sjálfvirkninotkun;

6.4.10 að öðru leyti nota VEXXA Work í ósamræmi við tilgang þess, eða;

6.4.11 brjóta gegn hugverkaréttindum VEXXA Work

6.5 Notanda er skylt að tilkynna VEXXA Work um öryggisbresti í VEXXA Work sem hann kann að uppgötva við notkun á VEXXA Work.

6.6 Í því skyni að koma í veg fyrir að brotist sé inn í aðgang notanda er notandi skyldugur til þess a.m.k. að:

6.6.1 verja öll tæki gegn misnotkun;

6.6.2 setja upp öruggar innskráningarupplýsingar;

6.6.3 nota ekki aðgangsauðkenni sem notuð eru af þriðja aðila;

6.6.4 vernda aðgangsauðkenni sín; og

6.6.5 koma í veg fyrir misnotkun aðgangsauðkennis.

6.7 Komi upp galli við notkun á VEXXA Work getur notandinn haft samband við VEXXA Work í gegnum heimasíðu eða app VEXXA Work Notanda er ljóst og samþykkir að það gæti tekið VEXXA Work nokkurn tíma að meta gallann og hvaða þjónusta er nauðsynleg.

6.8 Umsækjandi samþykkir að VEXXA Work geti nýtt upplýsingar sem tengjast upplýsingum hans eða starfsumsóknum til að vinna ýmis konar ópersónugreinanlegar heildarupplýsingar um vinnumarkaðinn.

7. Takmörkun ábyrgðar

7.1 VEXXA Work ber ekki ábyrgð á umsóknarferlinu eða þeim árangri sem næst með því að nota VEXXA Work þar sem umsóknarferlið er alfarið á ábyrgð fyrirtækis og öllum fyrirspurnum um ferlið skal beint til viðkomandi fyrirtækis. VEXXA Work er ekki ábyrgt fyrir útgjöldum eða öðrum kostnaði sem umsækjandi kann að verða fyrir í samskiptum við fyrirtæki, svo sem ef það ákveður að segja starfsmanni upp störfum, hætta við viðtal eða draga til baka tilboð um starf.

7.2 Umsækjandi veitir VEXXA Work og fyrirtæki upplýsingar og sækir um störf á eigin ábyrgð. VEXXA Work er ekki ábyrgt fyrir því hvernig fyrirtæki meðhöndlar umsóknir og upplýsingar sem umsækjandi veitir í umsóknarferlinu.

7.3 VEXXA Work ber ekki ábyrgð á því ef tilkynningar frá VEXXA Work reynast gallaðar, þeim seinkar eða ef notandinn fær þær ekki.

7.4 VEXXA Work ber ekki ábyrgð á efni atvinnuauglýsinga frá fyrirtækjum eða lögmæti þeirra. VEXXA Work er ekki ábyrgt fyrir mistökum, röngum dagsetningum eða áreiðanleika upplýsinga sem fyrirtæki skráir við stofnun auglýsinga eða síðar.

7.5 VEXXA Work ber ekki ábyrgð á efni ráðningarsamninga eða því hvort ráðning starfsmanns samræmist lögum, t.d. sé í samræmi við gildandi vinnulöggjöf, jafnréttislög eða ákvæði laga um ráðningar barna og ungmenna.

7.6 Ef í prófíl notenda, fylgigögnum eða pósthólfi eru tenglar á aðrar vefsíður eða annars konar samskiptamiðla, þá ber VEXXA Work enga ábyrgð á efni eða starfsemi slíkra tengla eða samskiptamiðla.

7.7 VEXXA Work er ekki ábyrgt fyrir óþægindum eða skemmdum sem kunna að verða vegna bilana eða galla í VEXXA Work, svo sem vélrænni bilun, tæknilegum mistökum, bilun í hugbúnaði, kerfisuppfærslu, galla í stýrikerfum, netkerfum eða fjarskiptakerfum eða vegna rofs á þjónustu VEXXA Work vegna rafmagnsbilunar eða truflana á fjarskiptaþjónustu.

7.8 VEXXA Work er ekki ábyrgt vegna óviðráðanlegra atvika (force majeure) sem geta leitt til þess að þjónusta VEXXA Work verði óaðgengileg, svo sem vegna ákvarðana stjórnvalda, náttúruhamfara, verkfalla (þ.m.t. fyrirhuguð verkföll) eða verkbanna, uppreisna, uppþota, skemmdarverka, hryðjuverka eða stríða eða vegna annarra svipaðra atburða sem ekki er hægt að koma í veg fyrir eða ráða við með venjulegum hætti af hálfu VEXXA Work

7.9 Ef VEXXA Work bilar eða liggur niðri, kann þjónustan að verða tímabundið óaðgengileg fyrir notandann án réttar hans til bóta.

7.10 Notandinn er meðvitaður um og samþykkir þær ábyrgðartakmarkanir sem tilgreindar eru í þessari grein.

8. Hugverkaréttur

8.1 Allt efni á vefsíðu og í appi VEXXA Work, svo sem hönnun, texti, grafík, myndir, ljósmyndir, upplýsingar, vörumerki VEXXA Work, tákn, tölvuforrit, frumkóði, gagnasöfn og önnur hugverk tilheyra eingöngu VEXXA Work eða samstarfsaðilum og dótturfélögum og njóta verndar laga um höfundarrétt og hugverkaréttindi. Óleyfileg notkun, þ.m.t. afritun, fjölföldun eða dreifing á þessu efni, hvort sem er að hluta eða í heild, kann að brjóta gegn lögum og er óheimil án leyfis VEXXA Work Með því að samþykkja þessa skilmála og nota VEXXA Work veitir VEXXA Work notanda eða fyrirtæki ekki leyfi til að nota hugverkaréttindin á nokkurn annan hátt en sem nauðsynlegt getur talist til að sækja um störf eða bjóða störf í gegnum VEXXA Work og til að hafa umsjón með starfsumsóknum.

9. Brot á skilmálum

9.1 Verði notandi uppvís að alvarlegum brotum á skilmálum þessum eða misnotar VEXXA Work á einhvern hátt áskilur VEXXA Work sér rétt til þess að loka aðgangi viðkomandi notanda að VEXXA Work án fyrirvara og loka einstaklingsprófíl umsækjanda tímabundið eða ótímabundið eða grípa til annarra viðeigandi úrræða. Sama gildir ef notandi hagar sér með ólögmætum eða óviðeigandi hætti.

9.2 Það telst ávallt alvarlegt brot á skilmálum þessum ef notandi:

9.2.1 sendir eða á annan hátt deilir upplýsingum sem brjóta gegn lögum eða skilmálunum eða gætu skaðað velvild og orðspor VEXXA Work

9.2.2 brýtur gegn skyldum sínum sem eru tilgreindar í ákvæði 6.

9.2.3 býr til einstaklingsprófíl í VEXXA Work sem byggir á óleyfilegri skráningu, t.d. persónu sem ekki er til, eða notar upplýsingar frá þriðja aðila án samþykkis þess aðila.

9.2.4 dreifir hatursfullu, ólöglegu eða óviðeigandi efni í gegnum VEXXA Work.

9.3 VEXXA Work áskilur sér rétt til að fjarlægja alla hatursorðræðu, ólöglegt og óviðeigandi efni úr VEXXA Work án fyrirvara.

9.4 Leiki grunur á að notandi hafi viðhaft ólögmæta háttsemi áskilur VEXXA Work sér rétt til að upplýsa viðeigandi yfirvöld um slíkt.

10. Breytingar á skilmálum

10.1 VEXXA Work áskilur sér rétt til að gera breytingar á skilmálunum, eftir því sem þörf er á. VEXXA Work mun tilkynna um skilmálabreytingar í gegnum netfang umsækjanda eða með tilkynningu sem birtist við næstu innskráningu og með því að gera nýja skilmála aðgengilega á vefsíðu og í appi VEXXA Work Hafni notandinn ekki breytingu á skilmálum innan 15 daga frá því að hann fékk um það tilkynningu, sbr. framangreint, samþykkir notandinn hina breyttu skilmála. Hafni notandinn hinum breyttu skilmálum innan framangreinds tímabils, telst sú höfnun jafngilda uppsögn á þjónustu VEXXA Work með 15 daga fyrirvara.

11. Uppsögn

11.1 Umsækjandi hefur rétt til að segja upp þjónustu VEXXA Work vilji hann ekki lengur nota VEXXA Work. Í slíkum tilvikum skal umsækjandi eyða einstaklingsprófíl sínum sem leiðir að öll umsóknargögn fjarlægjast úr VEXXA Work.

11.2 VEXXA Work hefur rétt til að segja upp þjónustu VEXXA Work með 15 daga fyrirvara sem hefst á þeim degi er umsækjanda berst tilkynning um uppsögn.

11.3 Uppsögn VEXXA Work á þjónustu leiðir til lokunar og eyðingar á einstaklingsprófíl og umsóknargögnum umsækjandans.

11.4 Ákvæði sem ætlað er að gilda lengur, jafnvel eftir að þjónustu VEXXA Work og notkun skv. skilmálum þessum hefur verið sagt upp, halda gildi sínu. Ákvæði 1, 4.2, 5, 6.1, 6.3, 6.4, 7, 8, 11.4, 13, 14 og 15 sérstaklega halda gildi sínu þrátt fyrir uppsögnina.

12. Eigendaskipti að VEXXA Work

12.1 Með notkun VEXXA Work samþykkir notandi að heimilt sé að flytja eignarhald á VEXXA Work eða VEXXA Work að hluta eða öllu leyti til þriðja aðila ásamt öllum þeim upplýsingum sem VEXXA Work hefur að geyma, án sérstaks samþykkis notanda. Sama gildir um hvers konar önnur lagaleg eigendaskipti á VEXXA Work eða VEXXA Work Yfirfærsla eignarhalds eða önnur lagaleg eigendaskipti að því er varðar VEXXA Work eða VEXXA Work, að hluta eða öllu leyti, hefur engin áhrif á gildi skilmálanna eða réttindi og skyldur aðila skv. skilmálunum. Tilvísun til VEXXA Work eða VEXXA Work í skilmálunum er tilvísun til kerfisins eða til félagsins með því eignarhaldi sem er til staðar á hverjum tíma.

13. Gildandi lögsaga

13.1 Um réttindi og skyldur samningsaðila sem tengjast notkun á VEXXA Work eða leiða af skilmálum þessum fer samkvæmt íslenskum lögum.

13.2 Rísi ágreiningsmál milli aðila vegna notkunar á VEXXA Work eða vegna skilmála þessara skal slíku máli ráðið til lykta fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur nema annað sé tekið fram.

14. Tungumál

14.1 Skilmálar VEXXA Work eru alla jafna gefnir út bæði á íslensku og ensku. VEXXA Work getur sjálfur ákveðið hvort íslenska eða enska er notuð er VEXXA Work fullnægir skyldum sínum samkvæmt skilmálunum þessum. Ef misræmi er á milli skilmála skal íslenski textinn ráða.

15. Samskipti

15.1 Öll samskipti milli samningsaðila skulu vera á íslensku eða ensku, einkum rafrænt í gegnum VEXXA Work eða netfang tilgreint á heimasíðu VEXXA Work

15.2 Kveði einhver ákvæði skilmálanna eða ákvæði laga sérstaklega á um skrifleg samskipti, er skriflegt form á pappír ekki nauðsynlegt ef VEXXA Work hefur gert ráðstafanir gagnvart notanda um skrifleg samskipti á netfang hans með einföldum rafrænum undirskriftum eða í gegnum VEXXA Work.

16. Gildistími

16.1 Skilmálarnir eru gefnir út af VEXXA Work og gilda frá 10.07.2025.

Viðauki við notendaskilmála VEXXA Work

Viðauki þessi er viðauki við notendaskilmála VEXXA Work, og jafnframt hluti þeirra skilmála, og gildir um notkun notanda á Hæfnileit VEXXA Work (hér einnig vísað til sem „þjónustan“) sem er aðgengileg á vefsíðu og í appi VEXXA Work Öll ákvæði skilmálanna gilda einnig um Hæfnileit nema annað sé sérstaklega tekið fram eða leiði af eðli máls. Með því að nota Hæfnileit VEXXA Work lýsa notendur því yfir að þeir hafi lesið, skilið og samþykkt skilmálana þ.m.t. þennan viðauka. Óheimilt er að nota Hæfnileit án þess að samþykkja skilmálana ásamt viðauka þessum.

**1. Skilgreiningar**

1.1. “Hæfnibjóðendur” eru umsækjendur í VEXXA Work sem hafa skráð sig í Hæfnileit.

1.2. “Hæfnileitendur” eru fyrirtæki í VEXXA Work sem nota Hæfnileit til að finna viðeigandi umsækjendur.

1.3. “Hæfnileit” er sérstök virkni í VEXXA Work sem parar saman prófíla hæfnibjóðenda við starfslýsingar hæfnileitenda með hjálp síuskilyrða og gervigreindar.

1.4. “Gervigreind” er gervigreindarkerfi þriðja aðila sem VEXXA Work nýtir og hefur verið þjálfað til þess að lesa og para saman prófíla hæfnibjóðenda og starfslýsingar hæfnileitenda.

**2. Lýsing á þjónustunni**

2.1. Þjónustan tengir hæfnibjóðendur við hæfnileitendur með því að para prófíla saman við starfslýsingar. Það er gert með því að nota síur og gervigreind til að vinna úr uppgefnum upplýsingum frá þessum aðilum.

2.2. Hæfnileit er ekki ætluð börnum eða einstaklingum yngri en 18 ára. Með skráningu í Hæfnileit staðfestir notandi að hann sé 18 ára eða eldri.

**3. Skráning í Hæfnileit**

3.1. Þátttaka í Hæfnileit er valkvæð bæði fyrir hæfnibjóðendur og hæfnileitendur. Hæfnibjóðendur sem kjósa að taka þátt í Hæfnileit VEXXA Work þurfa að samþykkja slíkt sérstaklega og uppfylla eftirfarandi skilyrði í grein 3.2. í viðauka þessum.

3.2. Til að skrá sig í Hæfnileit þurfa hæfnibjóðendur að:

3.2.1. Ljúka við að fylla út prófíl sinn í VEXXA Work að fullu (100%).

3.2.2. Gefa viðbótarupplýsingar, sem bætast við prófílinn og eru eingöngu notaðar í Hæfnileit, s.s. hæfni, starfskjör, starfsaðstæður og ferilskrá (hafi hún ekki áður verið tengd við prófíl).

3.2.3. Auðkenna sig með rafrænum skilríkjum og þar með gefa upplýsingar um fullt nafn, kennitölu og símanúmer.

3.3. Hæfnibjóðendur geta hvenær sem er valið að gera hlé á þátttöku sinni eða segja sig alfarið úr Hæfnileitinni, með því að haka sig úr Hæfnileit á vefsíðu eða í appi VEXXA Work.

3.4. Til að skrá sig í Hæfnileit þurfa hæfnileitendur að:

3.4.1. Fylla út starfslýsingu í flipanum “Hæfnileit” á vefsíðu og í appi VEXXA Work sem felur meðal annars í sér upplýsingar um starf, hæfnikröfur, starfskjör, starfsaðstæður.

3.4.2. Hæfnileitendur geta valið að láta nafn fyrirtækis ekki koma fram fyrr en hæfnibjóðendur fá boð í viðtal, sbr. grein 6.1. í viðauka þessum.

3.4.3. Ef hæfnileitendur vilja einnig auglýsa sama starf á vefsíðu og appi VEXXA Work þarf að búa til sérstaka auglýsingu eftir því sem almennt gildir. Skráning í Hæfnileitina er sérstök þjónusta og því eru þær skráningar meðhöndlaðar og paraðar sérstaklega óháð hefðbundum auglýsingum.

**4. Notkun gagna og persónuvernd**

4.1. Þjónustan notar eingöngu gögn og skjöl sem hæfnibjóðandi hefur sjálfur slegið inn í prófíl sinn. Þjónustan notar ekki persónugreinanlegar upplýsingar eins og nafn, aldur, kyn, þjóðerni eða trúarbrögð við pörun. Sjá nánar í Persónuverndarstefnu VEXXA Work.

4.2. Fyrsta síun prófíla hæfnibjóðenda byggist á uppgefnum upplýsingum þeirra, s.s. um hæfni, starfskjör og starfsaðstæður.

**5. Gervigreindarpörun**

5.1. Prófílar sem standast fyrstu síun eru sendir áfram í gervigreindarkerfi þriðja aðila. Gervigreindin metur upplýsingar úr prófílum, s. s. menntun og starfsreynslu og velur hóp hæfnibjóðenda sem fær upplýsingar um að verið sé að leita að starfsmanni í tiltekið starf. Þeir hæfnibjóðendur hafa tilgreindan tíma til að lýsa yfir áhuga á að sækja um starfið.

5.2. Gervigreindin velur með sama hætti úr hópi þeirra sem lýsa yfir áhuga og fá hæfnileitendur í kjölfarið aðgang að prófílum þeirra sem þá eru valdir.

5.3. Ef gervigreindin parar enga hæfnibjóðendur við starfslýsingu fá hæfnileitendur tækifæri til þess að breyta starfslýsingu.

**6. Boð og miðlun upplýsinga**

6.1. Þegar hæfnileitendur hafa fengið aðgang að prófílum hæfnibjóðenda geta þeir valið að bjóða hæfnibjóðendum í viðtal.

6.2. Hæfnileitendur eru ekki skuldbundnir til að senda boð til neins af þeim hæfnibjóðendum sem þeim voru sýndir.

6.3. Ef hæfnileitendur velja að bjóða einum eða fleirum í viðtal, sbr. grein 6.1. í viðauka þessum, fá hæfnibjóðendur upplýsingar um nafn fyrirtækisins ef það hefur ekki legið fyrir, sbr. grein 3.4. í viðauka þessum. Við tekur hefðbundið umsóknarferli með sama hætti og þegar umsækjandi hefur sent umsókn til fyrirtækis.

6.4. Ef hæfnibjóðendur hafna boðinu eða lýsa ekki yfir áhuga innan tilgreinds tíma fá hæfnileitendur ekki aðgang að prófílum þeirra.

**7. Geymsla gagna og gagnsæi**

7.1. Niðurstöður Hæfnileitar eru geymdar í þrjá mánuði og hægt er að fara yfir þær til að veita skýringar ef hæfnibjóðendur óska eftir því eða vilja setja fram sjónarmið eða athugasemdir. Niðurstöður Hæfnileitar verða ekki gerðar aðgengilegar Hæfnileitendum með öðrum hætti en skv. grein 5.2. í viðauka þessum og þá í ofangreinda þrjá mánuði.

7.2. Hæfnibjóðendur geta óskað skýringa á niðurstöðum Hæfnileitar og rökum sem búa að baki í ofangreinda þrjá mánuði með því að hafa samband við þjónustuver í tölvupósti, info@vexxawork.com. Hafi notandi hins vegar eytt gögnum sínum úr hæfnileit, sbr. ákvæði 3.3. í viðauka þessum, er ekki hægt að veita honum þessar upplýsingar.

**8. Ábyrgð hæfnibjóðenda og hæfnileitenda**

8.1. Hæfnibjóðendum og hæfnileitendum ber að sjá til þess að upplýsingar sem þeir veita séu réttar og uppfærðar. Misnotkun eða rangar upplýsingar geta leitt til tímabundinnar eða varanlegrar brottvísunar úr VEXXA Work, sbr. ákvæði skilmálanna um brot á þeim.

**9. Breytingar á skilmálum**

9.1. Viðauka þessum kann að verða breytt sérstaklega og þá í samræmi við ákvæði skilmálanna um breytingar.

Fyrirtækjaskilmálar · Persónuverndarstefna · Vefkökustefna · Eyðing reikninga