VEXXA Work

Leiðbeiningar fyrir fyrirtæki

Allt sem þarf til að birta störf, setja inn tilboð, halda utan um umsækjendur og stilla fyrirtækjaprófílinn í stjórnborði VEXXA Work.

Opna stjórnborðið

1. Yfirlit stjórnborðs

Þegar þú skráir þig inn sem fyrirtæki opnast stjórnborðið. Vinstra megin er valmyndin: Yfirlit, Störf, Umsækjendur, Skilaboð, Viðtöl, Mælaborð, Hæfileikabanki, Tilboð og Stillingar.

  1. 1.1

    Skráðu þig inn

    Farðu á vexxawork.com og veldu innskráningu fyrir fyrirtæki. Notaðu netfangið sem fyrirtækjaaðgangurinn er skráður á.

  2. 1.2

    Fylltu út fyrirtækjaprófílinn

    Í fyrsta skipti biður kerfið um nafn, lýsingu og lógó fyrirtækisins. Þetta birtist á öllum starfsauglýsingum þínum.

    Fyrirtæki með lógó og lýsingu fá marktækt fleiri umsóknir.

  3. 1.3

    Skoðaðu lykiltölur

    Yfirlitið sýnir virkar auglýsingar, nýjar umsóknir og næstu viðtöl svo þú sérð stöðuna strax.

1. Yfirlit stjórnborðs

2. Skrá störf

Undir „Störf“ sérðu allar auglýsingar fyrirtækisins, fjölda umsókna á hverja auglýsingu og getur breytt, afritað eða eytt.

  1. 2.1

    Smelltu á „Nýtt starf“

    Hnappurinn er efst til hægri á Störf-síðunni og opnar skráningarglugga.

  2. 2.2

    Grunnupplýsingar

    Starfsheiti, land, staðsetning, ráðningarform (fullt starf, hlutastarf o.fl.), flokkur og vinnuform (á staðnum, blandað, fjarvinna).

    Landið ræður því hvar auglýsingin birtist — umsækjendur sjá aðeins störf í því landi sem þeir hafa valið.

  3. 2.3

    Launagagnsæi

    Settu inn launabil og tímabil. Ef laun eru ekki gefin upp merkirðu við reitinn og það birtist á auglýsingunni.

    Störf með uppgefnu launabili fá mun fleiri umsóknir og eru síuð sérstaklega á starfalistanum.

  4. 2.4

    Lýsingar

    Stutt lýsing birtist í leitarniðurstöðum, ítarleg lýsing á auglýsingasíðunni. Þú getur notað „Velja starfslýsingu“ til að byrja með tilbúna lýsingu og lagfæra hana.

  5. 2.5

    Hæfnisflokkar

    Veldu þá hæfni sem starfið krefst. Hæfnin er notuð í sjálfvirkri pörun við prófíla umsækjenda og í hæfileikabankanum.

    5–10 hæfnisflokkar gefa nákvæmasta samsvörun.

  6. 2.6

    Myndir

    Veldu mynd fyrir auglýsinguna úr myndasafninu eða hlaðið upp eigin mynd af vinnustaðnum.

  7. 2.7

    Aukaspurningar

    Bættu við skimunarspurningum sem umsækjandi svarar í umsóknarferlinu — t.d. um ökuréttindi, tungumál eða starfsleyfi.

  8. 2.8

    Umsóknarfrestur og birting

    Settu umsóknarfrest og vistaðu. Auglýsingin fer strax í birtingu og lokast sjálfkrafa þegar fresturinn rennur út.

2. Skrá störf
2. Skrá störf

3. Setja inn tilboð

Undir „Tilboð“ getur fyrirtækið boðið notendum VEXXA Work afslætti og kynningar. Tilboðin birtast á tilboðasíðunni.

  1. 3.1

    Veldu tilboðspakka

    Bronze, Silver eða Gold — pakkarnir ráða því hversu mörg virk tilboð fyrirtækið má hafa í einu.

  2. 3.2

    Búðu til tilboð

    Gefðu tilboðinu titil, afsláttarmerki (t.d. „2 fyrir 1“), flokk, land og mynd.

    Skýr mynd og stutt fyrirsögn skila mestum smellum.

  3. 3.3

    Gildistími

    Settu upphafs- og lokadagsetningu. Tilboðið hverfur sjálfkrafa af tilboðasíðunni þegar það rennur út.

  4. 3.4

    Breyta eða eyða

    Notaðu „Breyta“ og „Eyða“ á hverju tilboði til að uppfæra eða taka það úr birtingu.

3. Setja inn tilboð

4. Umsækjendaferlið

Undir „Umsækjendur“ er ráðningarferlið sett upp sem ferli (Kanban): Nýjar umsóknir, Í skoðun, Viðtal, Tilboð og Ráðin/n.

  1. 4.1

    Farðu yfir umsóknir

    Smelltu á umsækjanda til að sjá ferilskrá, kynningarbréf, svör við aukaspurningum og samsvörun við starfið í prósentum.

  2. 4.2

    Færðu milli þrepa

    Dragðu spjaldið milli dálka. Umsækjandi fær sjálfkrafa tilkynningu þegar staða breytist.

  3. 4.3

    Sendu skilaboð

    Undir „Skilaboð“ er beint spjall við hvern umsækjanda. Umsækjandi fær tölvupóst um leið og þú sendir skilaboð.

  4. 4.4

    Bókaðu viðtal

    Undir „Viðtöl“ býður þú tíma. Umsækjandi velur tíma sem hentar og fær staðfestingu í tölvupósti.

  5. 4.5

    Taktu fjarviðtal

    Hvert bókað viðtal fær fjarfundarhlekk sem opnast beint í vafranum — engin uppsetning nauðsynleg.

  6. 4.6

    Hæfileikabanki

    Finndu umsækjendur sem hafa ekki sótt um en passa við starfið, og bjóddu þeim að sækja um.

4. Umsækjendaferlið
4. Umsækjendaferlið

5. Stillingar fyrirtækis

Undir „Stillingar“ heldur þú utan um fyrirtækjaprófílinn sem umsækjendur sjá.

  1. 5.1

    Lógó

    Hlaðið upp lógói fyrirtækisins. Það birtist á auglýsingum, fyrirtækjasíðunni og í skilaboðum.

    Ferningslaga mynd, minnst 400×400 px, skilar bestu útliti.

  2. 5.2

    Upplýsingar um fyrirtækið

    Nafn, lýsing, staðsetning, vefsíða og starfsmannafjöldi. Þetta byggir fyrirtækjasíðuna þína.

  3. 5.3

    Tengiliður og tilkynningar

    Netfang sem fær tilkynningar um nýjar umsóknir og skilaboð.

  4. 5.4

    Reikningsupplýsingar

    Kennitala og greiðsluupplýsingar fyrir auglýsingar og tilboðspakka.

5. Stillingar fyrirtækis

Þarftu aðstoð?

Sendu okkur línu á info@vexxawork.com og við hjálpum þér að koma fyrstu auglýsingunni í loftið.