Vefkökustefna
Gildir frá 19.08.2026.
VEXXA Work (hér eftir einnig „við“) notar vefkökur á vefsíðu sinni, www.vexxawork.com, til þess að bæta upplifun notenda. Vefkökur eru litlar textaskrár sem geymdar eru í tæki notenda og í þessari stefnu munum við fjalla nánar um hvers konar vefkökur við notum, hvers vegna við notum þær og hvernig þú getur stjórnað notkun okkar á þeim.
1. Hvers vegna notum við vefkökur?
VEXXA Work notar vefkökur, m.a. til þess að bæta notendaviðmót vefsíðunnar, til þess að bæta hana almennt, gera hana öruggari, gera þér kleift að deila efni á samfélagsmiðlum og til þess að gera markaðssetningu okkar markvissari. VEXXA Work notar vefkökur ekki til þess að flytja persónuupplýsingar til þriðja aðila né til að fá þóknanir fyrir sölu.
2. Grundvöllur fyrir notkun á kökum
2.1 Nauðsynlegar vefkökur
Þær vefkökur sem VEXXA Work notar eru að hluta til nauðsynlegar svo unnt sé að nota vefsvæðin eins og til er ætlast og til að tryggja öryggi samskipta sem gæti farið fram í gegnum vefsvæðin. Slíkar vefkökur eru forsenda fyrir notkun á vefsvæðum VEXXA Work og fullnægjandi efndum á samningi okkar auk þess að byggja á lögmætum hagsmunum VEXXA Work. Nauðsynlegar vefkökur eru t.d. notaðar til að:
2.2 Aðrar vefkökur
Aðrar vefkökur sem VEXXA Work gæti unnið með byggja á samþykki notenda. Notendur geta hvenær sem er afturkallað samþykki sitt eða alfarið hafnað slíkum kökum. Þessum vefkökum er ætlað að auðvelda notkun vefsíðunnar, s.s. varðandi stillingu tungumáls eða leturstærð. Hafni notendur slíkum kökunum kann það að hamla virkni vefsíðunnar að einhverju leyti.
2.3 Kökur þriðja aðila
VEXXA Work notar einnig vefkökur sem tilheyra þriðju aðilum á vefsíðu sinni, t.d. Google og Facebook. Þessir þriðju aðilar geta komið fyrir vefkökum í vöfrum notenda og með þeim hætti nálgast upplýsingar um heimsóknir á vefsíðuna. Slíkar þjónustur eru einkum notaðar til að afla vitneskju um notkun á vefsvæðunum og greina hvaða efni fólk hefur áhuga á að skoða. Með þeim hætti getur VEXXA Work betur aðlagað vefsvæðin að þörfum notenda.
Á vefsíðu okkar eru notaðar eftirfarandi vefkökur frá þriðju aðilum:
Samfélagsmiðlakökur: Það eru vefkökur sem gera þér kleift að deila efni af vefsíðu VEXXA Work á samfélagsmiðla, skrá þig inn í kerfi VEXXA Work með samfélagsmiðlaaðgangi þínum og hafa samband við okkur í gegnum samfélagsmiðla. Við notum eftirfarandi samfélagsmiðlakökur:
Vefkökur vegna heimsókna á vefsíðu VEXXA Work: Við notum vefkökur til að taka saman tölur um heimsóknir, s.s. fjölda þeirra sem hafa farið inn á vefsíðuna okkar, hvers konar tækni þeir nota (t.d. Mac eða Windows, sem hjálpar okkur að greina tilvik þar sem vefsíðan virkar ekki sem skyldi fyrir vissa tækni), hve lengi þeir eru á vefsíðunni, hvaða síður þeir skoða o.s.frv. Þetta hjálpar okkur að bæta stöðugt vefsíðuna. Þessi greiningarforrit segja okkur einnig hvaðan notendur komu inn á vefsíðuna (t.d. gegnum leitarvél) og hvort það hafi komið inn á hana áður, sem gerir okkur kleift að þróa þjónustu okkar með markvissum hætti. Til þess að afla framangreindra upplýsinga notum við vefkökur frá eftirfarandi aðilum:
Nánari upplýsingar um hvernig þriðju aðilarnir nota vefkökur má nálgast á vefsíðum þeirra.
3. Takmörkun eða óvirkjun á vefkökum
Yfirleitt er hægt að slökkva á vefkökum með því að breyta stillingum vafrans þannig að hann taki ekki við kökum.
Hér að neðan er að finna tengil í upplýsingar um kökustillingar í mismunandi vöfrum:
4. Hafa samband
Ef þú hefur spurningar um notkun okkar á vefkökum getur þú haft samband við okkur í gegnum info@vexxawork.com.
Almennir skilmálar · Fyrirtækjaskilmálar · Persónuverndarstefna · Eyðing reikninga
